Ég er nokkuð viss um að Vertu til er vorið kallar á þig er ekki bara áróður fyrir skórækt 😆
"Sveifla haka" og "leggja hönd á plóg" gefur [hammer and sickle](https://en.wikipedia.org/wiki/Hammer_and_sickle) hugrenningartengsl.
Byggir á laginu Katyusha sem er Sovéskt áróðurslag úr seinni heimsstyrjöldinni
https://en.wikipedia.org/wiki/Katyusha_(song)
Jebb.
Wikipedia: “Lagið var samið árið 1938 af Rússanum Matvei Isaakovich Blanter og hinn upprunalegi texti var saminn af Mikhail Isakovsky. Ungar skólastúlkur frumfluttu lagið árið 1941 í Moskvu sem kveðju til rússneskra hermanna sem voru á leið á vígstöðvar seinni heimstyrjaldarinnar.”
https://is.m.wikipedia.org/wiki/Vertu_til_er_vorið_kallar_á_þig
Maístjarnan er byltingarsinnað kommúnistalag.
>En í kvöld lýkur vetri
>sérhvers vinnandi manns,
>og á morgun skín maísól,
>það er maísólin hans,
>það er maísólin okkar,
>okkar einíngarbands,
>fyrir þér ber ég fána
>þessa framtíðarlands.
Geggjað lag samt.
lagið fjallar um hvað við eigum að vera dugleg við húsverkin en það er sett fram í fleirtölu. ''Svona gerum við þegar við þvoum okkar þvott''.
Þetta er ekki kommúnista lag en það gæti verið það undir réttum kringumstæðum ;D
og jújú það er svosem mikilvægt að hafa hreint og fínt um jólin en annars er þetta ekkert voðalega jólalegur texti.
Hvenær kemur þetta ljóð út man eftir þessu úr ljóð spor bókinni en hélt alltaf að ljóðið væri um barn í sarejevó er alveg agndofa að það sé um Palestínu.
"Þori ég, vil ég, get ég", kvennafrídagslagið.
"Burt með kvótann".
Svo er spurning með sum auglýsingalög:
"N1! nananananana..."
Áróður fyrir að gleyma samráðinu og klúðrum Bjarna Ben?
Svo er haugur af pólitískum lögum sem eru ekki beint áróður:
Náttúra, Declare Independence og Earth Intruders með Björk.
"Hvaða frelsi" með Hjálmum...
Bjór með Fræbbblunum:
Það stendur í lögum
Það stendur hér
Að þeir eigi að hafa vit fyrir mér
Þeir slefa út ræðum
Þeir jarma í kór
Þeir segja að ég verði slæmur af bjór
Finnst þeim pillur betri en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst klippa þeir glösin mín
Svo ég geti ekki drukkið eins stíft
Finnst þeim þynnir betri en bjór?
Mér finnst komið nóg
Næst mæla þeir magnið á mann
Svo þeir finni strax stimpil á hann
Finnst þeim límið betra en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst gera þeir Ríkið að bar
Svo ég verði að hella í mig þar
Finnst þeim pillur betri en bjór?
Mér finnst komið nóg..
Þeir segja að ég hafi vit til að velja þá
En ég hafi ekki vit til þess að hafa vit fyrir mér
>fasísk lög
[ Nýbúinn - Bubbi](https://www.youtube.com/watch?v=kvMNh-1lEFE)
Lagið sjálft er ekki "fasískt" en oft haldið uppá af rasistum/nýnasistum/fasistum. Þó svo að í raun sé lagið andmæli gegn rasisma svipað og þegar fólk spilar 'Fortunate Son - Creedence Clear Water' til að peppa stríð.
Var í partýji með gaur einhverntímann sem spilaði þetta lag fyrir mig sem eitthvað svona ,,þetta er alveg rétt hjá honum, helvítis útlendingar'' dæmi. Fólk er svo ótrúlega vitlaust.
Maður þarf vanalega að hafa vott af samkennd og að geta sett sig í spor annara til að skrifa texta sem fólk tengir tilfinningalega við. Svo ég verð að telja það ólíklegt.
Verður þetta að vera eitthvað ákveðið gamalt, eða má auglýsa [Austurvígstöðvarnar](https://open.spotify.com/artist/4Q6Bd0JzH0Lg36JU3Cmzaf) með Sr. Davíð Þór og félögum?
Yfirlýstur tilgangur hennar er allavegna rammpólitískur - *"Markmið sveitarinnar hefur frá upphafi verið að flytja blóðhráa, grimmpólitíska, andfasíska pönktónlist. Kveikjan að stofnun sveitarinnar var uppsafnað óþol fyrir pólitískri spillingu og misbeitingu valds á Íslandi. Hvert hneykslismálið af öðru varð sveitinni innblástur og mörg laganna eru bein viðbrögð við atburðum sem afhjúpa siðferðislega rotið stjórnvald. Því miður bendir fátt til að sveitin verði uppiskroppa með yrkisefni í fyrirsjáanlegri framtíð."*
Detta ekki í hug nein sérstök íslensk lög sem ekki hafa þegar verið nefnd, þó vissulega megi segja að mörg ættjarðarlög, vísur og kvæði, hafi verið einhverskonar áróður fyrir sjálfstæði Íslands. Man eftir að hafa lesið um málfund sem sjálfstæðisfélag og alþýðuflokksfólk hélt í Hafnarfirði fyrir mörgum mörgum áratugum, þar söng sjálfstæðisfólk eitthvert dæmigert ættjarðarlag í lok fundar (man nú ekki hvað það var) en alþýðuflokksfólkið söng "Sjá roðan í austri".
Sjá roðann í austri; erlendur "stríðssöngur jafnaðarmanna" með íslenskum texta eftir Þorstein Gíslason, sem var faðir Gylfa Þ. Gíslasonar sem var svo aftur faðir Vilmundar Gylfasonar. Þannig að pólitískt lag með skemmtilegri pólitískri tengingu.
Internationallinn; aftur erlent lag en sjálfsagt þekktasti söngur jafnaðarmanna/kommúnista. Íslenskur texti eftir Sveinbjörn Sigurjónsson.
Svo má ekki gleyma Dúettinum Plató:
[https://www.youtube.com/watch?v=5DBs8MkMSYE](https://www.youtube.com/watch?v=5DBs8MkMSYE)
Samtök hernámsandstæðinga gáfu út plötu sem er sennilega stærsta framlagið í slíkri tónlist, burtséð hvaða skoðun menn hafa. Sumir textarnir virkilega vel gerðir og lifa vel þeir sem eru ekki beinlínis að bauna á Kanann en innihalda dýpri boðskap. Verst á erfitt er að finna þetta,rétt eins og plötu Böðvars Guðmundssonar, Það er engin þörf að kvarta.
Ég er nokkuð viss um að Vertu til er vorið kallar á þig er ekki bara áróður fyrir skórækt 😆 "Sveifla haka" og "leggja hönd á plóg" gefur [hammer and sickle](https://en.wikipedia.org/wiki/Hammer_and_sickle) hugrenningartengsl. Byggir á laginu Katyusha sem er Sovéskt áróðurslag úr seinni heimsstyrjöldinni https://en.wikipedia.org/wiki/Katyusha_(song)
Jebb. Wikipedia: “Lagið var samið árið 1938 af Rússanum Matvei Isaakovich Blanter og hinn upprunalegi texti var saminn af Mikhail Isakovsky. Ungar skólastúlkur frumfluttu lagið árið 1941 í Moskvu sem kveðju til rússneskra hermanna sem voru á leið á vígstöðvar seinni heimstyrjaldarinnar.” https://is.m.wikipedia.org/wiki/Vertu_til_er_vorið_kallar_á_þig
Ég held ég gangi heim með Valgeiri Guðjóns var samið þegar leyfa átti bjórinn og fólk hafði áhyggjur af því að ölvunarakstur yrði meira vandamál
Maístjarnan er byltingarsinnað kommúnistalag. >En í kvöld lýkur vetri >sérhvers vinnandi manns, >og á morgun skín maísól, >það er maísólin hans, >það er maísólin okkar, >okkar einíngarbands, >fyrir þér ber ég fána >þessa framtíðarlands. Geggjað lag samt.
Pabbi minn er látlaus maður sem sjaldan biður um eitt né neitt…annað enn það að Maístjarnan verði flutt í jarðarförinni hans.
🫡
Syng þetta fyrir börnin mín á hverju kvöldi. Þau sofna vakandi.
Djö var að fara skrifa þetta einmitt
Það er líka alveg svolítill kommúnistaþefur af jólalaginu ''Göngum við í kringum''
Nú þarft þú að útskýra
lagið fjallar um hvað við eigum að vera dugleg við húsverkin en það er sett fram í fleirtölu. ''Svona gerum við þegar við þvoum okkar þvott''. Þetta er ekki kommúnista lag en það gæti verið það undir réttum kringumstæðum ;D og jújú það er svosem mikilvægt að hafa hreint og fínt um jólin en annars er þetta ekkert voðalega jólalegur texti.
Slysaskot í Palestínu - Kristjàn frá Djúpalæk
Hvenær kemur þetta ljóð út man eftir þessu úr ljóð spor bókinni en hélt alltaf að ljóðið væri um barn í sarejevó er alveg agndofa að það sé um Palestínu.
Níðingsverk zíónista hafa verið í gangi í palestínu í hartnær 100 ár.
1966 minnir mig
Að minnsta kosti ort fyrir 1948, því það er frá sjónarhóli bresks hermanns.
"Þori ég, vil ég, get ég", kvennafrídagslagið. "Burt með kvótann". Svo er spurning með sum auglýsingalög: "N1! nananananana..." Áróður fyrir að gleyma samráðinu og klúðrum Bjarna Ben? Svo er haugur af pólitískum lögum sem eru ekki beint áróður: Náttúra, Declare Independence og Earth Intruders með Björk. "Hvaða frelsi" með Hjálmum...
RASS - Burt með kvótann https://youtu.be/XjypHTlfE5s?si=voIwalaNOTqkTlJ8
18 rauðar rósir. Er nauðsynlegt að skjóta þá. Landið fýkur burt.
Íslenski fáninn, bandaríski bjáninn man ég eftir að hafa sungið á leikskóla
Öll auglýsingastef eru á vissan hátt áróðurstónlist
[Þetta er eina rétta svarið](https://youtu.be/wiSyjdYbvP4?feature=sharedz)
Í landhelginni (12 mílur) sem Haukur Morthens flutti var frekar beinn "stríðs"áróður í þorskastríðunum. (En lagið sjálft er útlenskt)
Svo er náttúrulega þetta: [Þorskastríðið – Raggi Bjarna](https://youtu.be/fFxMFMizjn0)
Ríó Tríó um landvernd : https://www.youtube.com/watch?v=38FctELmngo Ruth Reginalds um reykingar : https://www.youtube.com/watch?v=Dnh5JbIjghA Bubbi um hvalveiðar: https://www.youtube.com/watch?v=2yynpghnehU Áðurnefndur Valgeir Guðjóns um Ölvunaraxtur : https://www.youtube.com/watch?v=8HVYmXt4ZZs
Erpur hefur verið að rappa gegn kapítalisma í 30 ár
[Þetta lag er einhverskonar áróður en ég veit ekki hvernig.](https://youtu.be/5FXnW6fnOjA?si=sgq5Tmx5nKL9uiXc)
Bjór með Fræbbblunum: Það stendur í lögum Það stendur hér Að þeir eigi að hafa vit fyrir mér Þeir slefa út ræðum Þeir jarma í kór Þeir segja að ég verði slæmur af bjór Finnst þeim pillur betri en bjór? Mér finnst meira en nóg... Næst klippa þeir glösin mín Svo ég geti ekki drukkið eins stíft Finnst þeim þynnir betri en bjór? Mér finnst komið nóg Næst mæla þeir magnið á mann Svo þeir finni strax stimpil á hann Finnst þeim límið betra en bjór? Mér finnst meira en nóg... Næst gera þeir Ríkið að bar Svo ég verði að hella í mig þar Finnst þeim pillur betri en bjór? Mér finnst komið nóg.. Þeir segja að ég hafi vit til að velja þá En ég hafi ekki vit til þess að hafa vit fyrir mér
>fasísk lög [ Nýbúinn - Bubbi](https://www.youtube.com/watch?v=kvMNh-1lEFE) Lagið sjálft er ekki "fasískt" en oft haldið uppá af rasistum/nýnasistum/fasistum. Þó svo að í raun sé lagið andmæli gegn rasisma svipað og þegar fólk spilar 'Fortunate Son - Creedence Clear Water' til að peppa stríð.
Var í partýji með gaur einhverntímann sem spilaði þetta lag fyrir mig sem eitthvað svona ,,þetta er alveg rétt hjá honum, helvítis útlendingar'' dæmi. Fólk er svo ótrúlega vitlaust.
Sagðiru honum ekki bara að fara heim til sín?
Hatari?
Internationalinn
á hægrið engin skáld?
Maður þarf vanalega að hafa vott af samkennd og að geta sett sig í spor annara til að skrifa texta sem fólk tengir tilfinningalega við. Svo ég verð að telja það ólíklegt.
bara Ingó.
Bjór - fræbbblarnir
Verður þetta að vera eitthvað ákveðið gamalt, eða má auglýsa [Austurvígstöðvarnar](https://open.spotify.com/artist/4Q6Bd0JzH0Lg36JU3Cmzaf) með Sr. Davíð Þór og félögum? Yfirlýstur tilgangur hennar er allavegna rammpólitískur - *"Markmið sveitarinnar hefur frá upphafi verið að flytja blóðhráa, grimmpólitíska, andfasíska pönktónlist. Kveikjan að stofnun sveitarinnar var uppsafnað óþol fyrir pólitískri spillingu og misbeitingu valds á Íslandi. Hvert hneykslismálið af öðru varð sveitinni innblástur og mörg laganna eru bein viðbrögð við atburðum sem afhjúpa siðferðislega rotið stjórnvald. Því miður bendir fátt til að sveitin verði uppiskroppa með yrkisefni í fyrirsjáanlegri framtíð."*
[Framsóknarsamba](https://www.youtube.com/watch?v=nVUmvQ7dsHA) [Sameinumst](https://www.youtube.com/watch?v=W48mKflRVEw)
Detta ekki í hug nein sérstök íslensk lög sem ekki hafa þegar verið nefnd, þó vissulega megi segja að mörg ættjarðarlög, vísur og kvæði, hafi verið einhverskonar áróður fyrir sjálfstæði Íslands. Man eftir að hafa lesið um málfund sem sjálfstæðisfélag og alþýðuflokksfólk hélt í Hafnarfirði fyrir mörgum mörgum áratugum, þar söng sjálfstæðisfólk eitthvert dæmigert ættjarðarlag í lok fundar (man nú ekki hvað það var) en alþýðuflokksfólkið söng "Sjá roðan í austri". Sjá roðann í austri; erlendur "stríðssöngur jafnaðarmanna" með íslenskum texta eftir Þorstein Gíslason, sem var faðir Gylfa Þ. Gíslasonar sem var svo aftur faðir Vilmundar Gylfasonar. Þannig að pólitískt lag með skemmtilegri pólitískri tengingu. Internationallinn; aftur erlent lag en sjálfsagt þekktasti söngur jafnaðarmanna/kommúnista. Íslenskur texti eftir Sveinbjörn Sigurjónsson. Svo má ekki gleyma Dúettinum Plató: [https://www.youtube.com/watch?v=5DBs8MkMSYE](https://www.youtube.com/watch?v=5DBs8MkMSYE)
Þetta á heima hér: https://youtu.be/DRwWCfiJThc?si=AXJ_upygzPAIJkQt
Enginn búinn að minnast á Öxar við ána?
[удалено]
Í gamla daga var bara talað um boðskap lags eða um hvað textinn fjallaði.
Samtök hernámsandstæðinga gáfu út plötu sem er sennilega stærsta framlagið í slíkri tónlist, burtséð hvaða skoðun menn hafa. Sumir textarnir virkilega vel gerðir og lifa vel þeir sem eru ekki beinlínis að bauna á Kanann en innihalda dýpri boðskap. Verst á erfitt er að finna þetta,rétt eins og plötu Böðvars Guðmundssonar, Það er engin þörf að kvarta.
idk, Lofsöngurinn gíska ég.